Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ítrekar til nýrra eigenda Hvaleyrarbrautar 22 samþykkt sína frá 29.04.2008 að beitt verði dagssektum í samræmi við VI. kafla skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 vegna ólöglegra framkvæmda við húsið og ólöglegrar búsetu. Bæjarstjórn gefur núverandi eigendum tvær vikur til að tjá sig um málið eða gera við það athugasemdir."