Bæjarráð leggur áherslu á að góð sátt náist um þá endurskoðun sem fyrirhuguð er á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja ekki tímabært að fara í endurskoðun á fiskiveiðistjórnunarkerfinu eins og ástandið er í dag í þjóðfélaginu.