Fyrirspurn
Borist hafa upplýsingar um ólöglega búsetu í húsinu. Einnig að húsið sé enn skráð á byggingarstigi 1 og að lögboðnar úttektir hafi ekki farið fram, þar á meðal fokheldisúttekt. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 20.05.2009 eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Bærust þær ekki yrði málinu vísað til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um viðeigandi aðgerðir skv. skipulags- og byggingarlögum. Svar hefur ekki borist. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði 10.06.2009 málinu til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu:
Skipulags- og byggingarráð gerir eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Berist þær ekki innan þess tíma mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagsektum skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 þar til bætt verður úr.