Fyrirspurn
Borist hefur kvörtun frá íbúum Glitvalla 29 - 43 með tölvupósti dags. 03.06.2009 vegna frágangs á byggingarsvæði Glitvalla 37, sem notuð er fyrir birgðasvæði fyrir gáma. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 10.06.2009 lóðarhafa skylt að fjarlægja gámana innan tveggja vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi gera tillögu til skipulags- og byggingarráðs um beitingu dagsekta skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 37/1997. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði málinu 01.07.2009 til skipulags- og byggingarráðs. Skipulags- og byggingarráð gerði 07.07.2009 eigendum gámanna skylt að fjarlægja þá innan tveggja vikna. Yrði ekki brugðist við erindinu yrði málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Lagt fram bréf Leiknis Ágústssonar og Tinnu Bjarkar Halldórsdóttur lóðarhafa dags. 09.07.2009 þar sem gerð er grein fyrir málinu. Lagðar fram athugasemdir eftirlitsmanns skipulags- og byggingarsviðs dags. 24.07.2009.