Lagt fram erindi Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar sent í tölvupósti 17. 11. 2009 þar sem óskað er eftir aðstöðu á sameiginlegu svæði akstursíþrótta í Kapelluhrauni ásamt Kvartmíluklúbbnum.
Svar
Bæjarráð samþykkir að veita Akstursíþróttafélagi Hafnarfjarðar og Kvartmíluklúbbnum aðstöðu á sameiginlegu svæði í Kapelluhrauni í samræmi við fyrirliggjandi mæliblað og nánari skilmála skipulags- og byggingarsviðs.