Fyrirspurn
7.liður úr fundargerð BÆJH frá 8.okt. sl.
Lagt fram endurnýjað erindi Ólafs Jóhanns Ólafssonar og Sigríðar Einarsdóttur, dags. 15. apríl sl., þar sem óskað er eftir lóðarstækkun vegna breytinga á aðkomu. Skipulags- og byggingarfulltrúi hefur samþykkt erindið fyrir sitt leyti eftir grenndarkynningu.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að úthluta Ólafi Jóhanni Ólafssyni og Sigríði Einarsdóttur viðbót við lóðina Ljósaberg 32 í samræmi við fyrirliggjandi gögn og nánari skilmála skipulags- og byggingarfulltrúa."
Gunnar Svavarsson tók til máls.