Hverfisgata-Mjósund-Austurgata-Gunnarssund deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1652
9. febrúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
2. liður úr fundargerð SBH frá 1.febr. sl. Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að deiliskipulagi reits sem afmarkast af Mjósundi, Austurgötu, Gunnarssundi og efri lóðamörkum húsa við Hverfisgötu 31-49. Skipulags- og byggingarsvið gerði áður grein fyrir athugun á aðkomu að vitanum bak við lóðina Hverfisgata 41 og fundi með íbúum umhverfis vitann 08.04.2010. Áður lögð fram athugun skipulags- og byggingarsviðs á nýtingarmöguleikum Hverfisgötu 41. Á síðasta fundi var afgreiðslu frestað til þessa fundar. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að deiliskipulagstillagan verði auglýst samkvæmt 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að deiliskipulagi reits sem afmarkast af Mjósundi, Austurgötu, Gunnarssundi og efri lóðamörkum húsa við Hverfisgötu 31-49 verði auglýstur samkvæmt 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. "
Svar

Gunnar Axel Axelsson tók til máls. Þá Lúðvík Geirsson, Geir Jónsson.   Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.