Fyrirspurn
Samkvæmt fasteignaskráningu er húsið enn skráð á byggingarstigi 1 þótt það sé fullbyggt og hafi verið tekið í notkun, og að lögboðnar úttektir hafi ekki farið fram, þar á meðal fokheldisúttekt. Samkvæmt skilmálum átti húsið að skilast fokhelt 15.3.2007 og fullbúið 15.8.2007. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 02.09.2009 eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Bærust þær ekki yrði málinu vísað til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Upplýsingar hafa ekki borist. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 23.09.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu:
"Skipulags- og byggingarráð gerir eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Berist þær ekki verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."