Gunnar Axelsson tók sæti að nýju á fundinum. Skipulags- og byggingarráð samþykkir aðalskipulagsbreytinguna og að málinu verði lokið í samræmi við 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar lóð St. Jósepsspítala við Suðurgötu og að málinu verði lokið í samræmi við 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."