Suðurhella 8, Gámar lóð Þ.G verktaka.
Suðurhella 8
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 244
2. febrúar, 2010
Annað
‹ 15
16
Fyrirspurn
Við skoðun kom í ljós að mikið var um gáma við Suðurhelluna. Sérstaklega Suðurhellu 8 þar reyndust vera 34 gámar. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 11.11.2009 lóðarhafa skylt að fjarlægja gámana af lóðinni innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því innan þess tíma mundi skipulags- og byggingarfulltrúi gera tillögu til skipulags- og byggingarráðs um beitingu dagsekta í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 20.01.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir lóðarhafa skylt að fjarlægja gámana af lóðinni innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því innan þess tíma mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um beitingu dagsekta í samræmi við 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir lóðarhafa skylt að fjarlægja gámana af lóðinni innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því innan þess tíma mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um beitingu dagsekta í samræmi við 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 204738 → skrá.is
Hnitnúmer: 10092984