Sléttuhlíð B2, byggingarstig og framkvæmdir
Sléttuhlíð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 516
25. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Húsið var skráð fokhelt 21.12.12. Síðan hefur ekkert gerst, en húsið er fullbúið og tekið í notkun. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 19.02.14 byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggignarfulltrúi beita ákvæðum 56. greinar mannvirkjalaga nr. 160/2010 til að knýja fram úrbætur. Jafnframt var bent á ábyrgð eigenda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra skv. 15. grein sömu laga. Ekki hefur verið brugðist við erindinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi mun leggja dagsektir á eigendur og byggingarstjóra í samræmi við 56. grein laga um mannvirki verði ekki brugðist við erindinu innan 4 vikna.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 123122 → skrá.is
Hnitnúmer: 10034221