Fyrirspurn
11.liður úr fundargerð BÆJH frá 4.febr.sl.
Bæjarráð vísar eftirfarandi tillögu hafnarstjórnar til bæjarstjórnar.
Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti, og leggur til við bæjarstjórn:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að lóðinni Óseyrarbraut 1b verði úthlutað til Fylkis ehf, kt. 540169-3229, til sameiningar við lóðina Óseyrarbraut 1.
Kvöð verði á sameinaðri lóð um aðgang húseigenda Hvaleyrarbrautar 2 að lagnakjallara Hvaleyrarbrautar 2.
Úthlutunin verði bundin sterkum ákvæðum um snyrtilegan frágang lóðarinnar og snyrtilega umgengni um hana.
Að aflokinni sameiningu lóðanna verði lóðarheiti og númer Óseyrabrautar 1b fellt af lóðaskrám."