Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillagan verði send í auglýsingu skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að deiliskipulagi gatnamóta Reykjanesbrautar við Straumsvík dags. 04.04.2011 verði send í auglýsingu skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010."