Manning ehf sækir þann 05.01.2010 um leyfi til að breyta deiliskipulagi á Tjarnarvöllum 2 skv. uppdrætti arkitektur.is. Erindið var grenndarkynnt 11.01.2010. Athugasemdafresti lauk 8.2.2010. Ein athugasemd barst. Frestað á síðasta fundi.
Svar
Skipulags- og byggingarráð fellst ekki á að breyta deiliskipulaginu í samræmi við framkomna tillögu þar sem tillagan hefur neikvæð áhrif á gangandi og akandi umferð á svæðinu.