Búseti sækir um tillögu að breyttu deiliskipulagi vegna byggingar á bílageymslu samkvæmt teikningu Gunnars Sigurðssonar dags.05.01.2010. Erindið var grenndarkynnt 08.01.2010, athugasemdafresti lauk 08.02.2010. Athugasemd barst. Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs að svari við athugasemdum.
Svar
Skipulags- og byggingarráð gerir svar skipulags- og byggingarsviðs að sínu. Fellst á athugasemdir íbúa um að breytingin á deiliskipulagi hafi neikvæð áhrif á svæðið og synjar erindinu.