Eyrartröð 8, byggingarstig og notkun
Eyrartröð 8
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 416
4. júlí, 2012
Annað
Fyrirspurn
Húsið er á byggingarstigi 4, þrátt fyrir að það hafi verið tekið í notkun. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðar til lokaúttektar 13.03.2012 en frestur var veittur til vors. Ekkert hefur gerst í málinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi boðar til lokaúttektar 10.08.2012 kl. 14:00 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra er skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um. Sinni hann ekki erindinu mun skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæði 56. og 57. greina sömu laga um dagsektir og áminningu. Jafnframt er bent á ábyrgð eigenda skv. lögum um mannvirki nr. 160/2010.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120340 → skrá.is
Hnitnúmer: 10002430