Helgi Einarsson leggur 04.02.10 inn leyfi til að byggja sólstofu við hús sitt. Samkvæmt teikningum Sigurðar Þorvarðssonar dags. 02.05.2001. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 10.02.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar
Skipulags- og byggingarráð bendir lóðarhafa á að honum er heimilt að vinna að breytingu á deiliskipulagi á eigin kostnað í samræmi við 1. mgr. 23. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.