Heilbrigðisfulltrúi Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis óskar eftir umsögn um starfsleyfi fyrir húðflúrsstofu að Fífuvöllum 11. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 21.04.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar
Skipulags- og byggingarráð telur að slíkur rekstur sé ekki í andstöðu við gildandi skipulag en bendir á að þar sem um raðhús sé að ræða verði að leita eftir skriflegu samþykki nágranna.