Furuás 30, frágangur lóðar
Furuás 30
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 254
3. ágúst, 2010
Annað
‹ 21
22
Fyrirspurn
Ítrekuð hefur verið kvörtun vegna frágangs á lóðinni Furuás 30. byggingarefni, krani, steypumót og annað efni er á lóðinni, og staflað hefur verið upp efni beggja vegna götunnar. Talið er að hætta stafi af þessu. Byggingarstjóri hefur mætt í viðtal, segist enn vera að vinna í lóðinni, en viðmælandi sem sendi erindið telur ekkert vera þar að gerast nema bæta inn drasli á lóðina. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 28.07.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir byggingarstjóra Furuáss 30 skylt að fjarlægja tilgreint efni og tæki af lóðinni og götunni nú þegar. Verði ekki brugðist við því innan fjögurra vikna mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir byggingarstjóra Furuáss 30 skylt að fjarlægja tilgreint efni og tæki af lóðinni og götunni nú þegar. Verði ekki brugðist við því innan fjögurra vikna mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 207233 → skrá.is
Hnitnúmer: 10084782