Stefán Veturliðason VSB verkfræðistofu sendir með tölvupósti dags. 05.03.2010 fyrirspurn f.h. Glacier World e.f. varðandi vatnslögn frá Kaldárbotnum að Suðurhöfn vegna fyrirhugaðrar átöppunarverksmiðju þar. Lögð fram umsögn Framkvæmdasviðs dags.25.03.2010.
Svar
Gísli Ó. Valdimarsson vék af fundi við afgreiðslu þessa erindis. Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina og gerir umsögn framkvæmdasviðs að sinni.