Brimrót leggur inn 22.03.10 inn breytingar á byggingarleyfi, samkvæmt teikningum Friðriks Friðrikssonar dag.04.03.10. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 24.03.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs. Lagt fram bréf Stefáns Hjaltasonar f.h. Brimróts dags. 25.03.2010 ásamt eftirlits- og samskiptaskýrslu Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis dags. 19.02.2010.
Svar
Skipulags- og byggingarráð óskar eftir frekari upplýsingum frá Heilbrigðiseftirliti um hvort og hvernig megi koma í veg fyrir mögulega lyktarmengun frá fyrirtækinu en ekki er fjallað sérstaklega um það atriði í umsögn Heilbrigðiseftirlitsins.