Fyrirspurn
S.l. vor var sent bréf til húseigenda í hverfinu, sem er athafnasvæði, þar sem þess var farið á leit að tekið yrði til á lóðum, sótt um leyfi fyrir gáma o.fl. Við skoðun hefur komið í ljós að ekki hefur verið brugðist við þessu að Helluhrauni 14, og er baklóðin ein af 8 verst útlítandi í hverfinu. Skipulags-og byggingarfulltrúi gerði 21.04.10 húseiganda skylt að bæta frágang á lóðinni innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa málinu til Skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við grein 68.6 í byggingarreglugerð og grein 57 í skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Upplýsingar um hvaða eigendur eiga hlut að máli hafa borist. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 20.10.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu:
"Skipulags-og byggingarráð gerir hlutaðeigandi húseiganda skylt að bæta frágang á lóðinni innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við grein 68.6 í byggingarreglugerð og grein 57 í skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997."