Lögð fram tillaga um eftirfarandi fulltrúa Hafnarfjarðarbæjar í stjórn Suðurlinda ohf.: Aðalmenn: Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, Fjarðargötu 17 og Rósa Guðbjartsdóttir, Kirkjuvegi 7. Varamenn: Guðmundur Rúnar Árnason, Álfholti og Valdimar Svavarsson, Birkibergi 7. Ekki voru gerðar athugasemdir við tillöguna og teljast því framangreind réttkjörin í stjórn Suðurlinda ohf.