Fyrirspurn
Borist hefur fyrirspurn frá heibrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis varðandi samþykkta notkun. Samkvæmt fasteignaskráningu er húsið enn skráð á byggingarstigi 4 (fokhelt) þótt það sé fullbyggt og hafi verið tekið í notkun, og lögboðin lokaúttekt hefur ekki farið fram. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 20.07.10 byggingarstjóra/eigendum skylt að sækja um lokaúttekt innan fjögurra vikna. Yrði það ekki gert yrði málinu vísað til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 20.10.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir byggingarstjóra/eigendum skylt að sækja um lokaúttekt innan fjögurra vikna. Verði það ekki gert verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."