Fyrirspurn
Teknar fyrir á ný tillögur skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina, sem heimili viðbyggingu bílastæðis og kjallaraað lóðamörkum Brekkugötu 26. Breytingin nær einnig til Suðurgötu 27, bílskúr. Erindið var grenndarkynnt skv. 2. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Athugasemdatíma er lokið, athugasemdir bárust. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 29.09.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.