Halldór Kristjánsson og Jenný Ágústsdóttir sækja um að stækka lóð nr. 52 við Hraunbrún skv. meðfylgjandi uppdrætti. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 01.09.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar
Skipulags- og byggingarráð tekur neikvætt í lóðarstækkun, þar sem hún samræmist ekki deiliskipulagi fyrir reitinn. Í staðinn er lagt til að umsækjandi geti tekið umrætt land í fóstur í samræmi við reglugerð Hafnarfjarðarbæjar þar um.