Freyja Margrét Sigurðardóttir og Helgi Jón Harðarson leggja 27.08.10 fram fyrirspurn um að byggja út fyrir byggingarreit um ca 10 fermetra útbyggingu á suðvestur hlið hússins. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 15.09.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar
Skipulags- og byggingarráð bendir á að lóðarhafa er heimilt að gera tillögu að breytingu á deiliskipulagi á sinn kostnað sbr. 23. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.