Fyrirspurn
Tekin fyrir fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins frá síðasta fundi: Til hvaða ráðstafana getur Hafnarfjarðarbær gripið á ókláruðum lóðum eða byggingum í íbúðahverfum þar sem bein hætta stafar af, hafi byggingaraðili ekki brugðist við ítrekuðum beiðnum bæjaryfirvalda um að ganga frá lóðum sínum með viðhlítandi hætti?
Lagðir fram minnispunktar skipulags- og byggingarsviðs.