Straumsvík, Gasfélagið, nýtt deiliskipulag
Straumsvík
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 293
21. febrúar, 2012
Annað
Fyrirspurn
Gasfélagið ehf leggur 14.09.10 fram tillögu að deiliskipulagi, samkvæmt teikningum verkfræðistofunar Mannvits dags.09.09.2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag á áður ódeiliskipulögðu svæði. Skipulags- og byggingarráð óskaði 21.09.10 eftir umhverfismati áætlunar ásamt fylgigögnum þ.m.t. áhættumati, umsögn Brunamálastofnunar og Slökkviðliðs Höfuðborgarsvæðisins og Vinnueftirlits. Skipulags- og byggingarfulltrúi sendi fyrirspurn um málsmeðferð til Skipulagsstofnunar varðandi umhverfismat áætlunar. Lagt fram svarbréf Skipulagsstofnunar dags. 07.10.10 þar sem fram kemur að gasstöð í Straumsvík falli ekki undir lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Með tilvísan í 5. mgr. 9. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 telur Skipulagsstofnun Hafnarfjarðarbæ þó í fullum rétti að fara fram á að gerð verði grein fyrir áhrifum deiliskipulagsáætlunarinnar á umhverfi. Áður lögð fram öryggisúttekt Mannvits ehf. Lögð fram greinargerð Mannvits ehf um áhrif á umhverfi dags. 27.10.11, ásamt umsögnum Vinnueftirlits ríkisins dags. 14.10.11, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins dags. 21.10.11 og Mannvirkjastofnunar dags. 30.08.11. Lögð fram ný tillaga að deiliskipulagi dags. 08.02.12.
Svar

Skipulags- og byggingarráð ákveður að senda deiliskipulagið í auglýsingu með fyrirvara um samþykki Hafnarstjórnar, og vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að auglýst verði tillaga að deiliskipulagi fyrir gasstöð í Straumsvík í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."