Fyrirspurn
Samkvæmt fasteignaskráningu er húsið enn skráð á byggingarstigi 4 (fokhelt) þótt það sé fullbyggt og hafi verið tekið í notkun. Lokaúttekt hefur ekki farið fram. Upplýst hefur verið að byggingarstjórinn sé látinn, og var frestur veittur til 25.06.11 til að ráða nýjan byggingarstjóra. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 11.01.12 eigendum skylt að bregðast við erindinu innan þriggja vikna. Yrði það ekki gert mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita heimildum mannvirkjalaga til að fá fram úrbætur. Skipulags- og byggingarfulltrúi bókaði 22.2.12 að hann mundi leggja dagsektir á eigendur skv. 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 yrði ekki brugðist við erindinu innan þriggja vikna. Frestur var veittur til 01.06.12, en ekki hefur enn verið brugðist við erindinu. Reyndarteikningar voru samþykktar 28.08.13.