Fyrirspurn
Míla ehf sækir þann 10.11.2010 um leyfi til að gera breytingu á deiliskipulagi sem felur í sér að leyft verði að reisa 16 m hátt stálmastur við núverandi tækjahús Mílu ehf við Fléttuvelli 1. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 24.11.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um að erindið verði auglýst skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.