Lögð fram rekstraráætlun Sorpu bs. 2011 sem samþykkt var á stjórnarfundi 5. nóvember sl.
Jafnframt lögð fram fundargerð stjórnar Sorpu frá 5. nóvember sl.
Framkvæmdastjóri Sorpu Björn H. Halldórsson mættir á fundinn og kynnti framtíðarsýn Sorpu bs að kerfi fyrir flokkun og söfnun heimilisúrgangs. .
Svar
Lagt fram. Bæjarráð vísar rekstraráætlun Sorpu í vinnslu fjárhagsáætlunar 2011. Bæjarráð staðfestir ákvörðun stjórnar Sorpu bs um lokun endurvinnslustöðvar á Kjalarnesi. Bæjarráð þakkar einnig framkvæmdastjóranum góða kynningu.