Íshella 10, byggingarstig og notkun
Íshella 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 399
29. febrúar, 2012
Annað
Fyrirspurn
Íshella 10 sem er á iðnaðarsvæði er skráð á bst. 4 og mst. 8, og hefur verið tekið í notkun. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 17.11.10 byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt innan þriggja vikna. Boðað var til 31.03.11 en byggingarstjóri sinnti því ekki. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði byggingarstjóra skylt að óska eftir lokaúttekt innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og eiganda í samræmi við heimild í mannvirkjalögum nr. 160/2010 og jafnframt senda erindi á Mannvirkjastofnun varðandi áminningu til byggingarstjóra í samræmi við sömu lög.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir á eiganda Guðmund Aðalsteinsson og byggingarstjóra Oddgeir Arnar Jónsson skv. 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 frá og með 1. apríl 2012 kr. 20.000 á dag verði ekki brugðist við erindinu innan þriggja vikna. Bent er á ábyrgð eigenda skv. 15. gr. laga um mannvirki: "Eigandi ber ábyrgð á því að við hönnun, byggingu og rekstur mannvirkis sé farið að kröfum laga þessara og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra". Jafnframt verður því beint til Mannvirkjastofnunar að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 188568 → skrá.is
Hnitnúmer: 10073454