Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir á eiganda og byggingarstjóra Þröst Helgason skv. 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 frá og með 1. apríl 2012 kr. 20.000 á dag verði ekki brugðist við erindinu innan þriggja vikna. Bent er á ábyrgð eigenda skv. 15. gr. laga um mannvirki: "Eigandi ber ábyrgð á því að við hönnun, byggingu og rekstur mannvirkis sé farið að kröfum laga þessara og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra". Jafnframt verður því beint til Mannvirkjastofnunar að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki.