Steinhella 4, byggingarstig og notkun
Steinhella 4
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 498
19. febrúar, 2014
Annað
Fyrirspurn
Á Steinhellu 4 sem er á iðnaðarsvæði eru skráðar 6 eignir á bst/mst 4 og 8, þrátt fyrir að húsið er risið. Fokheldisúttekt var framkvæmd 04.03.11 en synjað þar sem eldvarnarveggi vantaði. Einnig vantar lokaúttekt. Frestur var veittur síðast til 01.06.2012. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 18.09.13 eiganda skylt að sækja um lokaúttekt innan 4 vikna. Yrði ekki brugðist við erindinu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæðum laga um mannvirki nr. 160/2010 til að knýja fram úrbætur.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og eigendur og senda erindi til Mannvirkjastofnunar um áminningu í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. Jafnframt er bent á ábyrgð eigenda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra skv. 15. grein sömu laga.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 189893 → skrá.is
Hnitnúmer: 10075945