Fyrirspurn
Á Steinhellu 4 sem er á iðnaðarsvæði eru skráðar 6 eignir á bst/mst 4 og 8, þrátt fyrir að húsið er risið. Fokheldisúttekt var framkvæmd 04.03.11 en synjað þar sem eldvarnarveggi vantaði. Einnig vantar lokaúttekt. Frestur var veittur síðast til 01.06.2012. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 18.09.13 eiganda skylt að sækja um lokaúttekt innan 4 vikna. Yrði ekki brugðist við erindinu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæðum laga um mannvirki nr. 160/2010 til að knýja fram úrbætur. Í síðustu viku gerði skipulags- og byggingarfulltrúi byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt innan fjögurra vikna, en komið hefur í ljós að hann hefur skráð sig af verkinu. Stöðuúttekt fór fram.