Steinhella 15 sem er á iðnaðarsvæði , er skráð á bst. 4 og matstigi 8, en húsið er í fullri notkun. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 24.11.10 byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt innan þriggja vikna. Frestur var veittur til 15.03.11.
Svar
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir eigendum skylt að bregðast við erindinu innan þriggja vikna. Verði það ekki gert mun skipulags- og byggingarfulltrúi beita heimildum mannvirkjalaga til að fá fram úrbætur.