Norðurhella 15, byggingarstig og notkun
Norðurhella 15
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 399
29. febrúar, 2012
Annað
Fyrirspurn
Norðurhella 15 er skráð á bst. 2, mst 1 þrátt fyrir að svo virðist sem sé búið að byggja húsið. Vantar fokheldi.Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 01.12.10 byggingarstjóra skylt að sækja um fokheldisúttekt innan þriggja vikna og síðan lokaúttekt í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Yrði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarfulltrúi vísa erindinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Byggingarstjóri sagði sig af verkinu 19.11.08. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 18.01.12 eigendum skylt að ráða byggingarstjóra og óska eftir fokheldis- og lokaúttekt innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við erindinu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita heimildum mannvirkjalaga til að fá fram úrbætur.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir á eiganda EV-17 ehf. skv. 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 frá og með 1. apríl 2012 kr. 20.000 á dag verði ekki brugðist við erindinu innan þriggja vikna. Bent er á ábyrgð eigenda skv. 15. gr. laga um mannvirki: "Eigandi ber ábyrgð á því að við hönnun, byggingu og rekstur mannvirkis sé farið að kröfum laga þessara og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra".

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 204727 → skrá.is
Hnitnúmer: 10092978