Gullhella 1, byggingarstig og notkun
Gullhella 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 477
11. september, 2013
Annað
Fyrirspurn
Gullhella 1, mhl 01 til 04 eru skráðir á bst 2 mst 1, þrátt fyrir að vera fullbyggðir og teknir í notkun. Um er að ræða vélaverkstæði og dreifistöð. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 24.11.10 byggingarstjóra skylt að sækja um fokheldisúttekt innan þriggja vikna og síðan lokaúttekt í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Yrði ekki brugðist við því myndi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa erindinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekki var brugðist við erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 11.01.12 byggingarstjóra skylt að óska eftir fokheldis- og lokaúttekt innan tveggja vikna. Yrði ekki brugðist við erindinu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita heimildum mannvirkjalaga til að fá fram úrbætur. Fokheldisúttekt fór fram 12.02.2013.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra og eigendum skylt að sækja um lokaúttekt innan 4 vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæðum laga um mannvirki nr. 160/2010 til að knýja á um úrbætur.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 213045 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097596