Skipulags- og byggingarfulltrúi ítrekar tilmæli sín til eigenda hússins að ráða byggingarstjóra sem sæki um lokaúttekt. Verði ekki brugðist við erindinu fyrir 1. september 2012 mun skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á eigendur, kr. 20.000 á dag, í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010.