Fyrirspurn
Hvaleyrarbraut 33 er skráð á bst. 4 og mst 8, 2 eignir af 6 eru skráðar á mst 7, þrátt fyrir að húsið virðist vera fullbyggt og hafi verið tekið í notkun. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra 01.12.10 skylt að sækja um lokaúttekt innan þriggja vikna. Frestur veittur til 15.02.11. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar 17.10.2012 kl. 14:00 í samræmi við 36. grein laga um mannvirki nr. 160/2010. Byggingarstjóra var skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um. Sinnti hann ekki erindinu mun skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæði 56. og 57. greina sömu laga um dagsektir og áminningu. Jafnframt var bent á ábyrgð eigenda skv. lögum um mannvirki nr. 160/2010. Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir á byggingarstjóra frá og með 01.01.13, en byggingarstjóri hefur sagt sig af verki og óskað eftir úttekt við byggingarstjóraskipti. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar/öryggisúttektar 2013 í samræmi við 2. mgr. 36. greinar laga um mannvirki nr. 160/2010 sem jafnframt yrði úttekt við byggingarstjóraskipti. Boðaðri lokaúttekt var synjað þar sem gögn höfðu ekki borist.