Melabraut 27, byggingarstig og notkun
Melabraut 27
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 399
29. febrúar, 2012
Annað
Fyrirspurn
Melabraut 27 er skráð á bst/mst 1, byggingar- og framkvæmdarleyfi, þrátt fyrir að húsið virðist vera fullbyggt og búið að taka í notkun. Vantar bæði fokheldis- og lokaúttekt. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 01.12.10 byggingarstjóra skylt að sækja um fokheldisúttekt innan þriggja vikna og síðan lokaúttekt í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Dagsektir áður lagðar á, en frestur veittur 01.05.11 teikningar á leiðinni að sögn. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 18.01.12 eigendum skylt að skila umræddum teikningum innan fjögurra vikna og sækja jafnframt um fokheldisúttekt og lokaúttekt. Yrði það ekki gert mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og eiganda í samræmi við heimild í mannvirkjalögum nr. 160/2010 og jafnframt senda erindi á Mannvirkjastofnun varðandi áminningu til byggingarstjóra í samræmi við sömu lög.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir á eiganda Vélaverkstæði Hjalta Einars ehf og byggingarstjóra Oddgeir Arnar Jónsson skv. 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 frá og með 1. apríl 2012 kr. 20.000 á dag verði ekki brugðist við erindinu innan þriggja vikna. Bent er á ábyrgð eigenda skv. 15. gr. laga um mannvirki: "Eigandi ber ábyrgð á því að við hönnun, byggingu og rekstur mannvirkis sé farið að kröfum laga þessara og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra". Jafnframt verður því beint til Mannvirkjastofnunar að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 121857 → skrá.is
Hnitnúmer: 10036035