Drekavellir 26.Lokaúttekt ólokið.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 399
29. febrúar, 2012
Annað
Fyrirspurn
Drekavellir 26.Lokaúttekt ólokið. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar dags. 30.06.11, en ekki tókst að ljúka henni þar sem athugasemdir voru gerðar. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 11.01.12 byggingarstjóra skylt að ljúka við atriði sem gerð var athugasemd við og óska innan þriggja vikna eftir endurtekinni lokaúttekt. Jafnframt var bent á ábyrgð eigenda á eftirliti með störfum byggingarstjóra. Ekki hefur verið brugðist við erindinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir eigendum og byggingarstjóra skylt að bregðast við erindinu innan 3 vikna. Að öðrum kosti mun skipulags- og bygigngarstjóri leggja dagsektir á eigendur og byggingarstjóra í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 og jafnfram beina því til Mannvirkjastofunuar að veita byggingarstjóra áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki. Bent er á ábyrgð eigenda skv. 15. gr. laga um mannvirki: "Eigandi ber ábyrgð á því að við hönnun, byggingu og rekstur mannvirkis sé farið að kröfum laga þessara og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra".