Hjólreiðastígar, starfshópur um skipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 269
1. mars, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekinn til umræðu kostnaður við fyrirhugaðan kynningarfund starfshópsins á verkefninu í samræmi við ákvæði í reglum um starfshópa á vegum Skipulags- og byggingarráðs sem samþykktar voru í Skipulags- og byggingarráði 14.12.2010.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að veita starfshópi um hjólreiðasamgöngur í Hafnarfirði heimild til að auglýsa opinn fund þann 3. mars n.k. samkvæmt meðfylgjandi kostnaðaráætlun upp á 35. þúsund krónur.