Þrastarás 44.Lokaúttekt ólokið.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 473
14. ágúst, 2013
Annað
Fyrirspurn
Björn Bjarnason sótti 04.05.2011 um lokaúttekt á Þrastarási 44. Lokaúttekt var framkvæmd 05.05.11 en lauk ekki þar sem athugasemdir voru gerðar. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til endurtekinnar lokaúttektar dags. 30.06.11, en frestur var veittur til 15.09.11. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 01.02.12 byggingarstjóra skylt að óska eftir endurtekinni lokaúttekt innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og eiganda í samræmi við heimild í mannvirkjalögum nr. 160/2010 og jafnframt senda erindi á Mannvirkjastofnun varðandi áminningu til byggingarstjóra í samræmi við sömu lög. Eigendur hafa haft samband og óskað eftir að lokaúttekt verði lokið. Skipulags- og byggingarfulltrúi lagði 28.03.12 dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra Björn Bjarnason frá og með 1. maí 2012 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010. Byggingarstjóri sagði sig einhliða af verki 01.03.12, en stöðuúttekt fór ekki fram, þannig að hann telst enn vera byggingarstjóri. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði byggingarstjóra Björn Bjarnason til stöðuúttektar 09.08.12 kl. 14:00. Sinnti hann ekki erindinu mun skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæði 56. og 57. greina laga um mannvirki nr. 160/2010 til að knýja fram úrbætur.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra Björn Bjarnason frá og með 15.09.2013 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi hann ekki sótt um stöðuúttekt fyrir þann tíma. Jafnfram verður sent erindi til Mannvirkjastofnunar um að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki.