Borið hefur á miklu vatni út úr hamrinum neðan Hellubrautar. Ástandskönnun lagna fór fram á svæðinu til að kanna leka. Lagnir eru í lagi en í ljós koma að hús númer 7 er ekki tengt lagnakerfinu, né rotþró sem er í lóðinni.
Svar
Skipulags- og byggingarfulltrúi ítrekar tilmæli til eiganda Hellubrautar 7,að tengja lagnir frá húsinu við rotþró eða lagnakerfi bæjarins. Bregðast skal við erindinu innan fjögurra vikna.