Fyrirspurn
Gunnar Hjaltalín óskaði í bréfi dags. 10. janúar 2010 til skipulags- og byggingarsviðs annars vegar að heimilað yrði að byggja tveggja hæða hús á lóð nr. 5 við Hellubraut skv. skilmálum og innan þeirra lóðamarka sem skipulagið segir til um. Skipulags- og byggingarfulltrúi tók neikvætt í byggingu tveggja hæða húss þar sem það samræmist ekki skipulagi svæðisins. Skipulags- og byggingarráð óskaði eftir frekari gögnum, skýringar hafa borist.
Hins vegar að að heimilað verði að rífa niður eða flytja hús á lóð nr. 7 við Hellubraut. Skipulags- og byggingarráð óskaði eftir umsögn Húsafriðunar ríkisins. Neikvæð umsögn hefur borist, dags. 09.03.11. Lögð fram ástandsskýrsla Strendings dags. júlí 2011.