Samband ísl. sveitarfélaga, kjarasamningsumboð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3280
20. janúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi Sambands ísl. sveitarfélaga sent í tölvupósti 12. janúar 2011 varðandi samningsumboð gagnvart SFR - stéttarfélagi í almannaþjónustu og Sjúkraliðafélagi Íslands. Einnig lagður fram listi yfir þau stéttarfélög sem samningumboð launanefndar sveitarfélaganna náði til.
Svar

Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkir að fela stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga fullnaðarumboð fyrir sína hönd til kjarasamningsgerðar við SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu og Sjúkraliðafélag Íslands. Jafnframt áréttar bæjarráðið fullnaðarumboð stjórnarinnar gagnvart þeim stéttarfélögum sem launanefnd sveitarfélaga hafði samningsumboð vegna.