Lögð fram tillaga Grindavíkurbæjar að nýju deiliskipulagi ásamt umhverfisskýrslu við Vatnsskarðasnámur. Óskað er eftir umsögn Hafnarfjarðarbæjar. Tillagan er í auglýsingu og er athugasemdafrestur til 25. febrúar 2010.
Svar
Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði í samvinnu við framkvæmdasvið að gera tillögu að umsögn fyrir næsta fund.