Tekið fyrir erindi umhverfisnefndar Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum (skilvirkari afgreiðsla aðalskipulags), 113. mál. Umsögn berist fyrir 11. febrúar 2011.
Svar
Skipulags- og byggingarráð telur breytingartillöguna mjög til bóta og gefur jákvæða umsögn um frumvarpið.